Óregluleg perla
Í myndlistarsögunni er sautjánda öldin gjarnan kennd við barokkListastefna sem var ríkjandi meira og minna alla 17. öldina. Stíllinn er breytilegur eftir löndum. Mikilfenglegur ýkjustíll sem einkennist af viðhafnarmiklum og svellandi formum. Á ítölsku og portúgölsku þýðir barokk „óregluleg perla“. Helstu einkenni barokktímans í myndlist eru þau að í málaralist urðu birtuskil skarpari en áður. Sjónarhornið færðist neðar, líkt og horft væri upp til fólksins á myndinni. Alþýðufólk og öldungar voru oftar fyrirsætur. Auk þess varð hreyfing og frásögn mikilvægari í málverkunum. More. Á ítölsku og portúgölsku þýðir barokkListastefna sem var ríkjandi meira og minna alla 17. öldina. Stíllinn er breytilegur eftir löndum. Mikilfenglegur ýkjustíll sem einkennist af viðhafnarmiklum og svellandi formum. Á ítölsku og portúgölsku þýðir barokk „óregluleg perla“. Helstu einkenni barokktímans í myndlist eru þau að í málaralist urðu birtuskil skarpari en áður. Sjónarhornið færðist neðar, líkt og horft væri upp til fólksins á myndinni. Alþýðufólk og öldungar voru oftar fyrirsætur. Auk þess varð hreyfing og frásögn mikilvægari í málverkunum. More „óregluleg perla“. Helstu einkenni barokktímans í myndlistList sem byggist á einhvers konar myndum, til að mynda málverk. More eru þau að í málaralistSú grein myndlistar sem einkennist af einstæðum myndverkum þar sem litarefni blandað bindiefni, t.d. vatni, olíu, eggjarauðu eða öðrum hentugum vökva, er borið á tvívítt undirlag, t.d. striga, viðarfjöl eða pappír. Liturinn er yfirleitt borinn á undirlagið með pensli en önnur verkfæri eru einnig notuð. (e. painting) | Málaralist More urðu birtuskil skarpari en áður. Sjónarhornið færðist neðar, líkt og horft væri upp til fólksins á myndinni. Alþýðufólk og öldungar voru oftar fyrirsætur. Auk þess varð hreyfingHreyfing og kyrrð segir til um hvernig augað færist yfir myndflötinn og myndbygginguna. Með því að búa til endurtekningu á formum í myndfletinum skapast oft meiri hreyfing. Eðli formanna og litanna í myndfletinum skapar hreyfingu hvort sem þau eru þung eða létt. Hrynjandi og endurtekning skapar einnig hreyfingu. More og frásögn mikilvægari í málverkunum. Höggmyndalistin tengdist að nýju húsagerðarlist og borgarskipulagi eins og hún hafði gert fyrir endurreisnartímann. Fellingar í klæðum sýndu meiri hreyfingu og ólík efni voru notuð saman til að auka tilfinningu fyrir raunveruleika. Ennfremur urðu áberandi tilfinningarík svipbrigði, reiði, sorg og gleði. Í húsagerðarlist var farið að nota skraut og prjál. FormLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More urðu sporöskjulaga fremur en hringlaga og áherslurÁherslur eru notaðar til að gera ákveðna hluta myndflatarins áberandi. Áherslur búa til brennidepil (fókus punt) sem fær áhorfandann til að horfa fyrst á þann stað myndverksins. More í hlutföllum urðu samhverfar fremur en dreifðar. Listgreinarnar þrjár; málaralistSú grein myndlistar sem einkennist af einstæðum myndverkum þar sem litarefni blandað bindiefni, t.d. vatni, olíu, eggjarauðu eða öðrum hentugum vökva, er borið á tvívítt undirlag, t.d. striga, viðarfjöl eða pappír. Liturinn er yfirleitt borinn á undirlagið með pensli en önnur verkfæri eru einnig notuð. (e. painting) | Málaralist More, húsagerðarlist og höggmyndalist urðu aftur samhangandi eins og verið hafði á miðöldum.
Caravaggio
Þekktasti málari Ítala á barokktímanum var Caravaggio (1571–1610). Hann var skapbráður og kraftmikill og málaði beint á strigann án þess að teikna fyrst á hann. Hann varð valdur að dauða manns árið 1606 vegna veðmáls og furða margir sig á því hvernig ofstopamaður eins og Caravaggio gat málað jafn fagrar myndir.
Caravaggio var umdeildur í lifanda lífi og vöktu verk hans oft hörð viðbrögð. Árið 1602 málaði hann mynd af Tómasi, lærisveininum vantrúaða sem varð að snerta síðusár Krists til að trúa. Myndin er raunsæ og sýnir lærisveininn sem utangarðsmann en það vakti mikla hneykslun að nota utangarðsmenn sem fyrirsætur. Caravaggio var frægur sem málari á 17. öldinni en gleymdist þar til 20. öldin tók hann í sátt.
Tómas lærisveinninn vantrúaða eftir Caravaggio.
Afneitun Péturs postula eftir Caravaggio.
Artemisia
Artemisia Gentileschi (1593–1652) var einn áhrifamesti málari sinnar kynslóðar. Artemisia var heillandi persóna og öðlaðist frægð langt út fyrir Ítalíu. Hún lifði sjálfstæðu og athafnasömu lífi sem konum á þeim tíma bauðst almennt ekki. Tjáningarmáti Artemisiu var kröftugur og dramatískur. Hún var mjög fær í að sýna áhrif ljóss og skugga í myndum sínum en slík dramatísk myndbirting náði hámarki með Rembrandt. Artemisia málaði mörg málverk af blóðugu myndefniÞað sem listamaður velur að mála hverju sinni. Einnig kallað mótíf. More úr Gamla testamentinu sem líklega á rætur sínar í erfiðri lífsreynslu sem hún varð fyrir á yngri árum. Konur voru oft viðfangsefni hennar.
Júdith drepur Hólófernes eftir Artemisiu. Málverkið vekur upp hugrenningatengsl við fréttaljósmyndir samtímans og þá skefjalausu grimmd sem blasir við áhorfandanum.
Rembrandt
Hollenski listamaðurinn Rembrandt Harmenszoon frá Rín (1606–1669) dýpkaði hugmyndir Caravaggios. Hann notaði skuggaspil hans og leikræn tilþrif og sótti sér fyrirsætur í hverfi gyðinga í Amsterdam, þegar hann málaði persónur úr Gamla testamentinu.
Hæfileikar Rembrandts fólust í því frelsi sem hann tók sér sem persónulegur listamaður. Hann teiknaði, málaði og vann grafíkverk. Í stað þess að fullvinna hvert atriði lét hann nægja að gefa hlutina í skyn. Þetta gaf áhorfendum meira svigrúm til þess að túlka sjálfir það sem fyrir augu bar. Þess vegna eru sjálfsmyndir hans einar þær tilfinningaríkustu í allri listasögunni hvað varðar túlkun og persónulýsingar. Rembrandt málaði ótal sjálfsmyndir, fleiri en nokkur annar listamaður hefur gert. Þær eru til vitnis um skilning hans á sálarlífi mannanna, þar sem þær endurspegla tilfinningar hans.
SjálfsmyndPortrett sem listamaður málar eða teiknar af sjálfum sér. More eftir Rembrandt. Sjálfsmyndir hans eru einstakar í sinni röð og vekja upp spurningar um það hvort listræn iðkun hans hafi verið öðrum þræði leit að sjálfsþekkingu og sjálfsrannsókn.
Málverkið Samsæri Batava (1661) er tveir og hálfur metri á hæð og þrír metrar á breidd. Niðurlendingar kölluðust Batavar. Myndin sýnir uppreisnarmennina, sem sigruðu hersveitir Rómverja árið 69, leggja á ráðin um samsærið og er sáttmáli þeirra aðalatriðiAðalatriði og smáatriði vísar í myndefnið og hvernig það er unnið. Aðalatriði er það sem augað nemur fyrst. Smáatriði eru mjög mikilvæg þegar heildin er skoðuð. Þau geta t.d. falist í nákvæmri litanotkun, teikningu, áferð eða endurtekningu. More myndarinnar. Rembrandt málaði myndina fyrir Ráðhúsið í Amsterdam en ráðamönnum fannst hann mála of frjálslega og höfnuðu verkinu. Hið listræna frelsi sem Rembrandt tók sér varð stundum til þess að fólk hætti við að kaupa af honum myndir sem það hafði pantað og hann einangraðist með tímanum.
Samsæri Batava eftir Rembrandt. TækniFærni eða aðferð í handverki og listum. More hans er afar sérstök því úr fjarlægð virðast málverk hans beinlínis vera lifandi en við nánari skoðun er málningunni smurt á strigann í þykkum klessum; hann gaf hlutina í skyn. Þessi aðferð skapar óvenjulega tilfinningu fyrir þrívíddÞað er lengd, breidd og hæð. Allt í kringum okkur eru þrívíðir hlutir eins og stólar, borð, styttur, leikföng, námsgögn og fleira. Teikningar og ljósmyndir eru oftast af þrívíðum hlutum en það eru myndirnar sjálfar sem eru í tveimur víddum (lengd og breidd). More, efniskennda áferðÚtlit yfirborðs. Áferð er fjölbreytt, hún getur verið gróf, slétt, loðin, hrjúf o.s.frv. Hægt er að tala um áferð á þrívíðum hlut eins og stein, hraunmola og trékassa. Þá er vísað í snertingu. En það er líka hægt að tala um áferð teikningar og málverks. Þá er vísað í það sem augað sér. (e. texture) More og gefur áhorfandanum mikið svigrúm til að fylla sjálfur í eyðurnar.
Bernini
Barokkið var stíll sem átti auðvelt með að miðla miklum tilfinningum, glæsileika og spennu með lifandi myndbyggingu, hreyfingu og smáatriðum. Kaþólska kirkjan og páfagarður ýttu undir útbreiðslu barokksins og brugðust þannig við vaxandi fylgi mótmælendatrúar. Stíllinn varð til í Róm og helsti upphafsmaður hans var myndhöggvarinn, arkitektinn og listmálararinn, Gian Lorenzo Bernini (1598–1680).
Bernini sá um byggingu Péturstorgsins í Róm. Þar gefur að líta tröllaukinn súlnafaðm á sporöskjulöguðu torgi. Á miðju torginu má sjá obelísku (uppmjóa steinsúlu) í anda Forn-Egypta og tvo gosbrunna. Konungar og einvaldar líktu eftir Péturstorginu þegar þeir skipulögðu hallir sínar og skrúðgarða, þar sem torgið var álitið nafli alheims og vildu þeir endurspegla það. Dæmi um þetta er Versalahöllin í nágrenni Parísar en hún sýnir vel hvernig konungurinn, Lúðvík 14. (1638–1715), líkti eftir sólkerfinu og alheiminum með sjálfan sig í miðjunni. Enda var hann kallaður Sólkonungurinn.
Péturstorgið í Róm sem Bernini hannaði.
Leiðarstjarnan
Hollenska listakonan Judith Leyster (1609–1660) var svokallaður tegundamálariTegundamálari er listamaður kallaður sem sérhæfir sig í ákveðnu viðfangsefni, t.d. blómamyndum, mannamyndum eða náttúrumyndum. More en það er listamaður sem sérhæfir sig í ákveðnu viðfangsefni, t.d. blómamyndum, mannamyndum eða náttúrumyndum. Leyster sérhæfði sig í mannamyndum, kyrralífsmyndum og skemmtimyndum með hljóðfæraleikurum. Hún var samtímakona listamannsins Frans Hals (1582–1666) og átti honum margt að þakka hvað tæknikunnáttu varðar.
Leyster var frábær málari og verk hennar full af lífskrafti. Margir hafa ruglað verkum hennar saman við verk eftir Frans Hals. Það var algengt að listaverk kvenna og listnema væru eignuð kennurum þeirra. Á sumum söfnum hanga enn þá myndir uppi undir nöfnum kennaranna þrátt fyrir að búið sé að leiðrétta hver málaði þær. Judith merkti verkin sín ávallt með stjörnu því Leyster þýðir „leiðarstjarna“ á flæmsku.
SjálfsmyndPortrett sem listamaður málar eða teiknar af sjálfum sér. More eftir Judith Leyster.
Málarar málaranna
17. öldin markaði tímamót með borgarskipulagi, höllum og lystigörðum. Einnig fór skilningur á vísindum, heimspeki og samfélagslegri vitund vaxandi. Þá grófu kaþólikkar og mótmælendur stríðsöxina árið 1648 eftir 30 ára stríðið.
Þótt ósætti ríkti milli Hollands og Spánar var ekki mikill munur á Rembrandt og fremsta listmálara Spánverja á 17. öld, Diego Velázques (1599–1660). Staða Velázques og Rembrandt var reyndar ólík, því Rembrandt var sjálfstæður listamaður en Velázques í öruggri stöðu sem hirðmálari Filippusar IV Spánarkonungs. Þekktasta málverk hans, Hirðmeyjarnar frá 1656 sýnir óvænta komu konungshjónanna inn í vinnustofu listamannsins þar sem listmálarinn er að mála málverk af prinsessunni.
Verkið er jafn óvenjulegt og málverk Jan van Eyck af Brúðkaupi Arnolfinis því að í báðum þessum verkum sést listamaðurinn sjálfur. Í málverki Jan van Eyck sést hann í speglinum í miðjunni en í málverki Velázques sést hann sjálfur líta snöggvast upp bakvið málverkið á trönunum. Sjálf konungshjónin sjást í spegli vinstra megin við miðju myndarinnar. SjónarhornSjónarhorn vísar í að hægt er að skoða sama hlutinn frá ólíkri staðsetningu. Við getum horft framan frá, aftan frá, neðan frá og frá hlið. Sjónarhorn getur líka vísað í að ólíkar manneskjur séu að horfa á hlutinn t.d. sjónarhorn barns eða sjónarhorn fullorðinna. Þeir sjá hlutina á ólíkan hátt, bæði ef tekið er mið af augunum og líka huganum. More áhorfandans er því það sama og konungshjónanna. Margar spurningar vakna þegar verkið er skoðað. Hvern var Velázques að mála? Var hann að mála sjálfan sig? Var hann að mála prinsessuna? Eða var hann ef til vill að mála sjálf konungshjónin? Heiti verksins, Hirðmeyjarnar, gefur til kynna að hann hafi verið að mála þær en ekki er allt sem sýnist. Það er þessi dæmalausa flétta sem gerir málverk Velázques að uppsprettu endalausrar umræðu.
Hirðmeyjarnar eftir Diego Velázques.
17. öldin gaf af sér fleiri listamenn. Hollenski listmálarinn Johannes Vermeer (1632–1675) málaði Matseljuna, eitt sitt þekktasta verk tveimur árum eftir að Velázques málaði Hirðmeyjarnar.
Líf og störf Vermeer eru listfræðingum mikil ráðgáta. Hann átti sæg af börnum og var fátækur allt sitt líf. Aðeins eru til 34 málverk eftir hann svo vitað sé. Málverkin eru agnarsmá í samanburði við risastór málverk Rembrandts og Velázques en titra af lífi og fegurð. Í verkum sínum sýnir Vermeer einfalt líf venjulegra borgarbúa öfugt við konunglegt líf Velázques og stjórnmálamenn Rembrandts. Hið hversdagslega, eins og að hella mjólk í skál, er skyndilega orðið að mikilvægu andartaki í listasögunni. Fyrirsætur Vermeer líta við með álíka undrunarsvip og við gerum sjálf þegar einhver nefnir nafn okkar og smellir af um leið með myndavélum nútímans.