Spíralaskál

STUTT LÝSING

Nemendur skoða spírala sem ekki aðeins eru manngerðir heldur einnig gerðir af náttúrunnar hendi. Þeir búa til spíralaskál.

HÆFNIVIÐMIÐ

Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 7. bekkjar getur nemandi

  • notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun
  • fjallað um eigin verk og annarra í virku samtali við nemendur

Við lok 10. bekkjar getur nemandi

  • greint og beitt fjölbreyttum aðferðum og tækni
  • gagnrýnt af þekkingu, sanngirni og virðingu eigin verk og annarra bæði einn og í samvinnu

KVEIKJA

Hvað haldið þið að þessir þrír spíralar tákni? Þeir geta táknað ýmislegt

og fer það eftir þjóðum eða menningarsamfélögum hvaða merking

er sett í spíralformið. Keltar, sem bjuggu á Írlandi, Wales og Englandi,

lögðu t.d. þá merkingu í þrjá tengda spírala að þeir táknuðu land, haf

og himin.

Spíralar eru ekki aðeins til manngerðir heldur líka af náttúrunnar hendi, þekkið þið einhver form í náttúrunni sem líkjast spírölum?

Spíralar bera ýmis heiti t.d. lógaritma spírall og Arkímedes spírall og það eru til allskyns útfærslur af þeim.

Nú búið þið til spírala úr leir og raðið þeim á ákveðið form þannig að til verði skál, spíralaskál.

Skálina er hægt nota til dæmis sem nammiskál, þegar búið er að brenna hana í leirbrennsluofni.

FRAMKVÆMD

Byrjað er á að velja skál til að móta eftir. Það getur verið plast-, tré- eða glerskál, helst ekki minni en 12 cm breið og 6 cm há.

Skálin er sett á hvolf á viðarplötu eða spónaplötu og léreftsbútur lagður yfir hana. Skálin má alveg vera stærri en þá þarf meira magn af leir en gefið er upp hér að ofan.

Leirinn er hnoðaður og u.þ.b. 400 gramma klumpur tekinn til að móta úr. Klumpurinn er skorinn niður í litla búta, bútunum er rúllað upp í 10–12 cm lengjur, sem eru 1 cm að breidd. Rúllið í 5 til 6 lengjur til að byrja með, ekki of margar því þær þorna fljótt.

Fyrsti spírallinn er lagður efst á skálina, þ.e. botninn sem er á hvolfi, og næsti þar við hliðina og raðið þeim svo áfram koll af kolli allan hringinn alveg niður að spónaplötu. Leggja á hvern spíral aðeins ofan á þann næsta og ýta þétt á svo að þeir límist saman. Undir lokin er í lagi að spíralarnir séu ekki allir jafn langt frá plötunni.

Spíralaskálin er látin þorna á léreftinu ofan á skálinni í hálfan til einn dag. Þá er hún tekin af og snúið við og látin þorna í nokkra daga fyrir hrábrennslu eða þar til hún er alveg þurr.

Nú er búið að hrábrenna skálina og þá er hægt að glerja hana alla í einum lit eða mála hana með leirlit, sjá bls. 46–47 í bókinni

Leirmótun-keramik fyrir alla. Því næst er hún glerjuð með glærum glerungi, óski nemandinn þess. Hér er hins vegar valið að draga fram spíralamynstrið með því að mála með járnoxíði, bls. 45–46, yfir alla skálina með frekar hörðum pensli.

Járnoxíðið er síðan þvegið af með rökum svampi. Með þessu móti verða línurnar í skálinni sýnilegri.

Ef skálin er ekki of blaut eftir járnoxíðsþvottinn er hægt að glerja hana strax, annars verður að bíða þar til hún er vel þurr svo að glerungurinn setjist betur á hana. Hér er málað með þunnum gulum pensilglerungi, sjá bls. 50, misjafnlega margar umferðir yfir hvern spíral til að fá litinn misjafnlega þykkan. Hér er búið að brenna skálina með gula glerungnum og aðra með koparlituðum glerungi við 1060 °C. Takið eftir hvað járnoxíðið dregur fram form spíralanna.

UMRÆÐUSPURNINGAR

Hafðir þú eitthvað náttúruform t.d. orm eða kuðung í huga þegar þú mótaðir eða málaðir skálina

þína eða eitthvað listaverk? Ætlið þið að nota skálarnar ykkar? Ef svo er, undir hvað helst?

Viljið þið segja eitthvað sérstakt um skálarnar ykkar?

ÍTAREFNI

Leitarorð t.d.: triple spiral | archimedean spirals | natural spirals | logarithmic spiral

ALDUR

Miðstig
Unglingasti
g

GRUNNÞÆTTIR

Heilbrigði og velferð, læsi, sjálfbærni og sköpun.

FJÖLDI KENNSLUSTUNDA

4 x 80 mínútur

ÞVERFAGLEG TENGING

T.d. samþættingarverkefni sjónlista, stærðfræði og náttúrugreina.

EFNI OG ÁHÖLD
  • 400 g vel rakur leir, sem límist næstum því við hendur
  • gler-, plast- eða viðarskál u.þ.b. 12 cm breið og 6 cm há
  • glerungar
  • latex hanskar (við oxíðþvottinn)
  • leirlitir, undirglerungslitir eða oxíð t.d. járnoxíð
  • penslar
  • spónaplata s.s. 30 x 30 cm
  • svampur
HUGTÖK

Glerungur
Hrábrennsla
Járnoxíð
Leirlitur
Pensilglerungur
Spírall

LISTAMENN

S.s.
Henri Matisse
Michelangelo Merisi da Caravaggio
Pablo Picasso
Paul Cézanne
Vincent van Gogh

LISTASAGA

T.d.
Barokk
Síð-impressjónismi
Kúbismi

HÖFUNDUR

ⓒ Kristín Ísleifsdóttir
Menntamálastofnun 2022