Olíulitirnir uppgötvaðir – listmálarar koma til sögunnar
Árið er 1400 í Niðurlöndum eins og Holland, Belgía og Lúxemborg voru kölluð. Íbúarnir voru kallaðir Flæmingjar eftir landsvæðinu Flandri sem núna tilheyrir Belgíu. Í Niðurlöndum voru listamenn á þessum tíma að myndskreyta handrit af mikilli nákvæmni og smekkvísi. Fagurt dæmi um það er eitt dýrmætasta handrit heimsins: Ríkustu tíðir hertogans af Berry, sem flæmsku bræðurnir Herman, Paul og Johan frá Limburg myndskreyttu. Handritið er 416 blaðsíður með 131 málaðri síðu og 300 skreyttum upphafsstöfum. Það er í svokölluðum gotneskum alþjóðastíl og var málað á árunum 1410 til 1416. Handritið er dagatal sem birtir texta og myndir fyrir bænastundir hvers einasta dags á árinu.
Hluti af handritinu Ríkustu tíðir hertogans af Berry.
Til þess að auka raunsæiStefna sem kom fram um miðja 19. öld en meginmarkmið hennar er að lýsa umhverfinu eins skýrt og skilmerkilega og kostur er. Öfugt við rómantísku stefnuna þá fjallaði raunsæisstefnan um það almenna fremur en hið sérstæða. Hún hafnaði trúarlegum, sögulegum og goðsögulegum viðfangsefnum. Þess í stað var samtímanum lýst með beittri gagnrýni á yfirstéttina en hinar lægri stéttir fengu vinsamlegri umfjöllun. Þannig varð raunsæisstefnan að verkfæri í pólitískri baráttu. Raunsæisstefnan varð ekki langlíf en hún rann saman við impressjónismann eftir 1860. More í málverkum fóru hollenskir listamenn að nota olíuliti í stað egg-temperalita. Þannig litir þekktust en voru ekki vinsælir þar sem þeir voru svo lengi að þorna. Hinn langi þurrktími varð seinna að spennandi eiginleika því þannig fékk listamaðurinn tækifæri til að dýpka blæbrigði og mála smáatriðiAðalatriði og smáatriði vísar í myndefnið og hvernig það er unnið. Aðalatriði er það sem augað nemur fyrst. Smáatriði eru mjög mikilvæg þegar heildin er skoðuð. Þau geta t.d. falist í nákvæmri litanotkun, teikningu, áferð eða endurtekningu. More með mun meiri nákvæmni en áður.
Brúðkaup Arnolfinis
Glæsilegt dæmi um málaralistSú grein myndlistar sem einkennist af einstæðum myndverkum þar sem litarefni blandað bindiefni, t.d. vatni, olíu, eggjarauðu eða öðrum hentugum vökva, er borið á tvívítt undirlag, t.d. striga, viðarfjöl eða pappír. Liturinn er yfirleitt borinn á undirlagið með pensli en önnur verkfæri eru einnig notuð. (e. painting) | Málaralist More af þessu tagi er málverkið Brúðkaup Arnolfinis eftir flæmska listamanninn Jan van Eyck (1395–1441) sem var þekktasti málari Norður-Evrópu. Málverkið sameinar allt það besta í flæmskri málaralistSú grein myndlistar sem einkennist af einstæðum myndverkum þar sem litarefni blandað bindiefni, t.d. vatni, olíu, eggjarauðu eða öðrum hentugum vökva, er borið á tvívítt undirlag, t.d. striga, viðarfjöl eða pappír. Liturinn er yfirleitt borinn á undirlagið með pensli en önnur verkfæri eru einnig notuð. (e. painting) | Málaralist More, frumlega myndhugsun, nákvæma útfærslu, nýjan skilning á innanhússbirtu og mikið vald á túlkun smáatriða.
Arnolfini var ítalskur kaupmaður sem settist að í Brugge í Hollandi árið 1419. Takið eftir ljósakrónunni fyrir ofan hjónin. Við höfuð brúðgumans er logandi kerti en við höfuð brúðarinnar er kertið útbrunnið. Merking þess er talin vera sú að þegar myndin var máluð hafði konan verið látin af barnsförum en hún var ólétt eins og greinilega má sjá. Myndin var þá saknaðarverk um hana. Áritun málarans á vegginn bakvið hjónin, „Jan van Eyck var hér“ og spegillinn sem sýnir baksvip hjónanna og málarann hafa alla tíð valdið sérfræðingum miklum heilabrotum.
Brúðkaup Arnolfinis eftir flæmska listamanninn Jan van Eyck.
Baksvipur hjónanna og málarans sést í speglinum.
Flórens á Ítalíu á 15. öld
Eftir því sem við færumst nær samtíma okkar fjölgar listamönnunum sem hafa áhrif á framvinduna. Flórensbúar höfðu forskot á aðra Evrópubúa lengst af á 15. öld og voru þar í fararbroddi nokkrir listamenn. Það voru Brunelleschi, Donatello (1386–1466) og málarinn Masaccio (1401–1428).
Donatello var fær með hamarinn og meitilinn og var harður marmarinn eins og mjúkt smjör í höndum hans. Stytta hans af Davíð með höfuð Golíats við fætur sér var fyrsta nakta styttan sem gerð var síðan á tímum Rómverja. Auk þess var styttan frístandandi og án allrar tengingar við byggingarlistListrænn og tæknilegur þáttur í byggingu mannvirkja. Eins og í öðrum listgreinum nær byggingarlist bæði yfir fagurfræði og notagildi sem eru samofnir þættir í hverju verki. Áherslur á hvort um sig eru mismunandi eftir verkum. Flest menningarsamfélög hafa þróað með sér sérstakan byggingarstíl og háþróuð samfélög hafa tileinkað sér fjölbreytta tækni, stíl- og byggingartegundir. More en það var alger nýjung. Masaccio var yngstur brautryðjendanna. Hann lést langt fyrir aldur fram og sumir halda að hann hafi verið myrtur af öfundarmönnum sínum með eitri. Hans síðasta verk var sex og hálfs metra há freskaVeggmálverk málað með vatnslitum á raka kalkhúð þannig að liturinn binst múrnum meðan hann er að þorna (buon’ fresco). Stundum eru freskur þó málaðar á þurran vegg (fresco secco) og eru þá litirnir blandaðir límefni. Kostur þessarar tækni er að málningin flagnar ekki af þó að veggurinn springi. Liturinn getur haldið sér í margar aldir. Myndirnar geta samt dökknað af sóti frá reykelsi og kertum. Freskur eru mjög algengar í kirkjum. Listamenn endurreisnartímabilsins máluðu t.d. sín verk með freskutækninni. (e. frescoes) | Málaralist More af Heilagri þrenningu. Verkið er í Nýju Maríukirkjunni í Flórens. Þar má sjá Krist á krossinum, Föðurinn, Maríu Guðsmóður og Jóhannes skírara. Hjónin sem gáfu verkið krjúpa fremst á myndinni en algengt var að efnað fólk gæfi listaverk til kirkju sinnar. Auk þess er beinagrind neðst, eins og hún sé í grafhýsi undir gólfinu. Ofan við beinagrindina er ritað: „Ég var eitt sinn það sem þér eruð og það sem ég er munið þér einnig verða.“
Heilög þrenning
Málverk Masaccios af heilagri þrenningu var fyrsta sjónblekkingarverk endurreisnar. Áhorfendum finnst þeir sjá inn í raunverulega bogahvelfingu því Masaccio notaði fjarvíddartæknina sem Brunelleschi hafði uppgötvað.