STUTT LÝSING
Nemendur teikna portrettMynd af einhverri ákveðinni manneskju. Einnig kallað andlitsmynd. More mynd í anda popplistar. Áður skoða þau hvernig formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More, litir og myndbyggingÖll listaverk eru með eina ríkjandi myndbyggingu. Þegar myndbygging er rædd er vísað í alla uppbyggingu myndverksins með því að fjalla t.d. um liti, fleti, línur, stefnu, hreyfingu, dýpt, rými, forgrunn, bakgrunn, miðrými. More getur undirstrikað ákveðna þætti eða boðskap myndverks, t.d. með því að raða sömu formum upp á mismunandi vegu.
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni,
- haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni,
- gert grein fyrir menningarlegu hlutverki list- og verkgreina,
- gert grein fyrir helstu hugtökum sem tengjast viðfangsefni hans,
- sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði,
- lagt mat á eigin verk og sýnt skilning á vönduðum vinnubrögðum.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun,
- nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun,
- unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk,
- byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu,
- beitt hugtökum og heitum sem tengjast aðferðum verkefna hverju sinni,
- fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur,
- greint og fjallað um áhrif myndmáls í umhverfinu og samfélaginu.
Hæfniviðmið fyrir stærðfræði
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
Tölur og reikningur
KVEIKJA
Byrjað er á að ræða um popplist og einkenni hennar.
Því næst er hugtakið portrettMynd af einhverri ákveðinni manneskju. Einnig kallað andlitsmynd. More úrskýrt og skoðuð portrettMynd af einhverri ákveðinni manneskju. Einnig kallað andlitsmynd. More eftir Andy Warhol. Rætt er um silkiþrykkMyndverk unnin með grafískri flatþrykksaðferð þar sem mynd er unnin á fínofinn silki- eða nælondúk sem strekktur er á ramma. Límkennt fylliefni er borið á þá fleti sem eiga að vera hvítir en vefurinn hafður opinn þar sem litur á að komast í gegn. Einnig má nota ljósmyndatækni og skapalón til að yfirfæra myndir á vefinn. Ramminn er lagður ofan á pappír á þrykkborði og litur skafinn jafnt yfir vefinn þannig að mynd kemur fram á pappírnum. Fyrir hvern lit myndarinnar er útbúinn sérstakur rammi. Þessi aðferð hefur verið notuð frá lokum 19. aldar og er einnig nefnd sáldþrykk eða serigrafía (úr lat. sericum, silki og gr. grafein, skrifa). (e. serigraphhs) | Grafík More aðferðina sem Warhol notaði við gerð myndanna og hvernig sú tækniFærni eða aðferð í handverki og listum. More gerði honum mögulegt að gera mörg eintök af sömu myndinni í mismunandi litum.
Því næst er farið í gegnum aðferð til að teikna höfuð og andlit í „réttum“ hlutföllum. Orðið réttum er í gæsalöppum þar sem engin tvö andlit eru eins og hlutföllHlutfallið milli einstakra parta í málverki. More geta verið mismunandi þó nota megi vissar grunnreglur til viðmiðunar. En sú algengasta er sýnd skref fyrir skref hér fyrir neðan.
FRAMKVÆMD
1. skref
Teiknið ferning sem er 16 cm á breidd og 16 cm á lengd.
2. skref
Teiknið ferhyrning sem er 8 cm á breidd og 12 cm á hæð. Allar línur sem sýndar eru í rauðu skal teikna mjög laust því þetta eru hjálparlínurHjálparlínur eru línurnar sem notaðar eru til að ná fram línulegri fjarvídd. Þegar myndin er tilbúin eru hjálparlínurnar strokaðar út. More.
3. skref
Skiptið ferhyrningnum í 2 jafna helminga.
4. skref
Teiknið egglaga höfuð sem er breiðara að ofan en neðan.
5. skref
Teiknið hjálparlínu fyrir hárlínuna u.þ.b. 1,5 cm frá hvirfli (1/8 hluti af 12 cm).
6. skref
Skiptið bilinu frá hárlínunni og niður að höku í 3 jafna hluta (3,5 cm) með 2 hjálparlínum.
7. skref
Til að finna stærð og staðsetningu augnanna er breidd höfuðsins skipt í 5 jafna hluta (1,6 cm hver hluti).
8. skref
Teiknið augu og augabrúnir. Munið eftir augnkrókunum og augnlokunum. Augu eru oftast möndlulaga og augabrúnir geta verið mismunandi í laginu hjá fólki.
9. skref
Teiknið nefið. Breidd nefsins milli nasavængjanna er oft miðuð við breidd bilsins milli augnanna. Nef eru að sjálfsögðu mjög mismunandi að stærð og lögun og því er besta leiðin til að teikna nef að fá sér spegil og æfa sig á eigin nefi eða skoða myndir og herma eftir þeim.
10. skref
Teiknið eyrun. Stærð eyrna er einstaklingsbundin en þau eru samt sem áður staðsett á ákveðnum stað. Þau ná frá augabrúnum eða efri brún augna og niður að neðri brún nefsins. Eyru virðast frekar flókin og gott að nota fyrirmyndir til að skoða lögun og gerð.
11. skref
Teiknið munninn. Breidd munnsins er oftast miðuð við breidd bilsins milli augasteinanna. Bilið milli efri varar og höku er oftast 1/4 af heildarstærð höfuðsins.
12. skref
Teiknið hárið, hálsinn, axlirnar (og peysu eða bol?). Hárið getur verið sítt eða stutt, krullað eða slétt, allt eftir smekk.
13. skref
Farið nú ofan í allar línur (nema hjálparlínurHjálparlínur eru línurnar sem notaðar eru til að ná fram línulegri fjarvídd. Þegar myndin er tilbúin eru hjálparlínurnar strokaðar út. More) með grönnum svörtum tússEru bæði til í fljótandi formi og í pennum. Þeir eru búnir til úr litadufti, vatni og bindiefni. Það er mismunandi eftir framleiðendum hvaða bindiefni eru notuð. More. Strokið síðan út allar blýantslínur. Ljósritið myndina í 4 eintökum (eða 5 því gott er að hafa 1 eintak til vara).
14. skref
Veljið 4 liti (tré- eða tússliti) og litið mismunandi hluta andlitsins og bakgrunninn með hverjum lit. Til að auðvelda sér vinnuna er hægt að búa til töflu eins og sést á meðfylgjandi mynd.
15. skref
Að lokum eru myndirnar klipptar út og límdar á karton (t.d. svart).
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvað er popplistStefna í myndlist sem fram kom í Evrópu og Bandaríkjunum um 1960 þar sem myndefni er sótt m.a. í myndasögur og auglýsingar, með áherslu á neyslusamfélagið. Eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar urðu heilmiklar breytingar á lifnaðarháttum í hinum vestræna heimi. Fjöldaframleiðsla alls kyns neysluvarnings jókst og ofbauð hópi listamanna í London neysluhyggjan. More?
Hvað er portrettMynd af einhverri ákveðinni manneskju. Einnig kallað andlitsmynd. More?
Skoðið nokkrar myndir eftir popplistamenn. Hvað eru myndirnar að segja? Fjalla þær um neysluþjóðfélög og fjölmiðlunar? T.d. myndasögur, auglýsingar, kvikmyndir, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt?
ÍTAREFNI
Leitarorð: Andy Warhol | Andy Warhol prints | grafíkSú grein myndlistar sem byggist á hvers konar þrykktækni. Myndirnar eru t.d. unnar á málmplötu, stein, tré eða línóleumdúk, síðan er litur/sverta borin á flötinn og myndin þrykkt á pappír, oftast í takmörkuðu upplagi. Afþrykkin eru síðan tölusett og árituð af listamanninum sem oftast annast prentunina sjálfur. (e. graphic art) More dúkrista | pop art | popplistStefna í myndlist sem fram kom í Evrópu og Bandaríkjunum um 1960 þar sem myndefni er sótt m.a. í myndasögur og auglýsingar, með áherslu á neyslusamfélagið. Eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar urðu heilmiklar breytingar á lifnaðarháttum í hinum vestræna heimi. Fjöldaframleiðsla alls kyns neysluvarnings jókst og ofbauð hópi listamanna í London neysluhyggjan. More | self portrait
Litir – veggspjald í myndmennt
ALDUR
Miðstig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
2 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og stærðfræði
EFNI OG ÁHÖLD
A4 pappír
blýantar, vel yddaður
litir (t.d. tré-, túss- eða vaxlitirEru litir í föstu formi. Þeir eru búnir til úr litarefni og vaxi. More)
reglustika
strokleður
tússEru bæði til í fljótandi formi og í pennum. Þeir eru búnir til úr litadufti, vatni og bindiefni. Það er mismunandi eftir framleiðendum hvaða bindiefni eru notuð. More, grannur (t.d. Artline 210 nr. 0,6 eða Artline 200 nr. 0,4)
HUGTÖK
dúkrista
grafíkSú grein myndlistar sem byggist á hvers konar þrykktækni. Myndirnar eru t.d. unnar á málmplötu, stein, tré eða línóleumdúk, síðan er litur/sverta borin á flötinn og myndin þrykkt á pappír, oftast í takmörkuðu upplagi. Afþrykkin eru síðan tölusett og árituð af listamanninum sem oftast annast prentunina sjálfur. (e. graphic art) More
popplistStefna í myndlist sem fram kom í Evrópu og Bandaríkjunum um 1960 þar sem myndefni er sótt m.a. í myndasögur og auglýsingar, með áherslu á neyslusamfélagið. Eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar urðu heilmiklar breytingar á lifnaðarháttum í hinum vestræna heimi. Fjöldaframleiðsla alls kyns neysluvarnings jókst og ofbauð hópi listamanna í London neysluhyggjan. More
portrettMynd af einhverri ákveðinni manneskju. Einnig kallað andlitsmynd. More
silkiþrykkMyndverk unnin með grafískri flatþrykksaðferð þar sem mynd er unnin á fínofinn silki- eða nælondúk sem strekktur er á ramma. Límkennt fylliefni er borið á þá fleti sem eiga að vera hvítir en vefurinn hafður opinn þar sem litur á að komast í gegn. Einnig má nota ljósmyndatækni og skapalón til að yfirfæra myndir á vefinn. Ramminn er lagður ofan á pappír á þrykkborði og litur skafinn jafnt yfir vefinn þannig að mynd kemur fram á pappírnum. Fyrir hvern lit myndarinnar er útbúinn sérstakur rammi. Þessi aðferð hefur verið notuð frá lokum 19. aldar og er einnig nefnd sáldþrykk eða serigrafía (úr lat. sericum, silki og gr. grafein, skrifa). (e. serigraphhs) | Grafík More
LISTAMENN
Andy Warhol
LISTASAGA
PopplistStefna í myndlist sem fram kom í Evrópu og Bandaríkjunum um 1960 þar sem myndefni er sótt m.a. í myndasögur og auglýsingar, með áherslu á neyslusamfélagið. Eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar urðu heilmiklar breytingar á lifnaðarháttum í hinum vestræna heimi. Fjöldaframleiðsla alls kyns neysluvarnings jókst og ofbauð hópi listamanna í London neysluhyggjan. More
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022