STUTT LÝSING
Nemendur teikna skó út frá mismunandi sjónarhorni og kynnast möguleikum línunnar.
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni,
- haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni,
- gert grein fyrir menningarlegu hlutverki list- og verkgreina,
- gert grein fyrir helstu hugtökum sem tengjast viðfangsefni hans,
- sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði,
- lagt mat á eigin verk og sýnt skilning á vönduðum vinnubrögðum.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun,
- nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun,
- unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk,
- byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu,
- beitt hugtökum og heitum sem tengjast aðferðum verkefna hverju sinni,
- fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur,
- greint og fjallað um áhrif myndmáls í umhverfinu og samfélaginu.
KVEIKJA
Byrjað er á smá tilraun. Nemendur fá lítil skissublöð og blýanta. Kennarinn stillir upp einföldum hlut (s.s. könnu eða bolla) fyrir framan þau. Hver og einn sér hlutinn frá sínu sjónarhorni. Nemendur eru beðnir um að teikna hlutinn og það á eingöngu að teikna hann á ca. 1-3 mínútum. Myndirnar eru síðan settar upp á töflu og skoðaðir í sameiningu. Flestir hafa líklegast teiknað hlutinn eins og þeir sjá hann fyrir sér í huganum (skematísk teikningSú grein myndlistar sem byggir á því að dregnar eru línur á slétt undirlag, oftast pappír, með hjálp blýants, penna, krítar eða annars áhalds sem skilur eftir sig spor. Áhersla er lögð á útlistun forma frekar en notkun lita. Teikningar eru oft einlitar eða með mjög takmarkaðan litaskala. More) og hafa ekki tekið tillit til þess hvernig hluturinn leit út frá þeirra sjónarhorni. Ef einhver hefur hins vegar teiknað hlutinn eins og hann lítur út frá hans sjónarhorni má nota þá mynd til að útskýra muninn á því að teikna það sem heilinn sér eða það sem augað sér.
Ef tími er til, eru nemendur beðnir um að teikna útlínurSvartar línur utan um form eða hluti, til dæmis í teiknimyndasögum. More hlutarins með því að fylgja útlínum hans með augunum og án þess að líta á blaðið (e. blind contour drawing).
Að lokum er nemendum sagt að í aðalverkefninu þ.e. skóverkefninu eigi að teikna með augunum en ekki heilanum. Teikna á útlínurSvartar línur utan um form eða hluti, til dæmis í teiknimyndasögum. More skósins og allar línur og smáatriðiAðalatriði og smáatriði vísar í myndefnið og hvernig það er unnið. Aðalatriði er það sem augað nemur fyrst. Smáatriði eru mjög mikilvæg þegar heildin er skoðuð. Þau geta t.d. falist í nákvæmri litanotkun, teikningu, áferð eða endurtekningu. More sem þeir sjá á skónum. Nemendur teikna skóinn frá þremur hliðum: ofan frá, neðan frá og frá hlið. Frá þessum hliðum eru ekki neinar styttingar (kennari metur hvort hann vilji að nemendur teikni frá öðrum sjónarhornum þar sem e.t.v. koma fram styttingar).
FRAMKVÆMD
Nemendur fá pappír og gögn sem þau þarfnast og hefjast handa við skóinn. Gott er að minna þau á að teikna laust.
Nemendur stilla skónum upp frá því sjónarhorni sem þau ætla að byrja á að teikna hann. Ef teikna á skóinn neðan frá (skósólann) verða þau að stilla skónum þannig upp að þau sjái sólann vel. Nemendur þurfa e.t.v. einhvern hlut t.d. hinn skóinn til að skorða skóinn þannig að auðvelt sé að teikna hann frá því sjónarhorni.
Nemendur byrja á því að æfa sig á skissublað. Æfingin felst í því að fylgja nákvæmlega útlínum skósins með augunum og teikna hann án þess að líta á blaðið (e. blind contour drawing). Að því loknu teikna þau skóinn á stærra blað með því að fylgja útlínunum með augunum en mega núna kíkja af og til á blaðið.
Áður en nemendur byrja að teikna á stærra blaðið þurfa þau að ákveða hvar á blaðinu hver hlið á að vera. Til að finna það út er ágætt að leggja sjálfan skóinn á blaðið og merkja við hæl, tá og við hliðarnar. Þetta eru hjálparlínurHjálparlínur eru línurnar sem notaðar eru til að ná fram línulegri fjarvídd. Þegar myndin er tilbúin eru hjálparlínurnar strokaðar út. More sem hjálpa síðan til við það að teikna skóinn nokkurn veginn í réttri stærð.
Þegar búið er að teikna útlínurnar, teikna nemendur allar línur og smáatriðiAðalatriði og smáatriði vísar í myndefnið og hvernig það er unnið. Aðalatriði er það sem augað nemur fyrst. Smáatriði eru mjög mikilvæg þegar heildin er skoðuð. Þau geta t.d. falist í nákvæmri litanotkun, teikningu, áferð eða endurtekningu. More sem eru á skónum. Ekki á að skyggja myndina en nemendur fara ofan í blýantsteikninguna með útlínutúss. Þau sem eru fljót að vinna geta litað skóna með trélitum og jafnvel fyllt út í neikvæða rýmið með bakgrunnsteikningu og litað.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvernig getum við séð sama hlutinn í nýju ljósi?
ÍTAREFNI
Litir – veggspjald í myndmennt
Kveikjur fyrir skapandi skólastarf
Leitarorð: contour drawing | contour shoe drawing
ALDUR
Miðstig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
2-80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
Samþættingarverkefni sjónlista og annarra greina eftir því hvernig verkefnið er útfært.
EFNI OG ÁHÖLD
blýantar (og strokleður ef þarf)
e.t.v. trélitirEru litir í föstu formi sem eru búnir til úr litadufti, vaxi og/eða olíu og bindiefni. Sumir trélitir eru vatnsleysanlegir og geta virkað vel með blautum pensli. More
kanna eða bolli með haldi og/eða stút
pappír ca. 32 x 45 cm eða A3
skissublöð ca. A4
skór (hver nemandi kemur með sinn skó)
svartir útlínutússpennar ( t.d. Artline 210 nr. 0,6 eða Artline 200 nr. 0,4)
HUGTÖK
línaLína hefur upphaf og endi í punkti. Hún getur haft fjölbreytta lögun, verið óregluleg og regluleg, bein, hlykkjótt, loðin, áberandi, gróf, fíngerð o.s.frv. More
sjónarhornSjónarhorn vísar í að hægt er að skoða sama hlutinn frá ólíkri staðsetningu. Við getum horft framan frá, aftan frá, neðan frá og frá hlið. Sjónarhorn getur líka vísað í að ólíkar manneskjur séu að horfa á hlutinn t.d. sjónarhorn barns eða sjónarhorn fullorðinna. Þeir sjá hlutina á ólíkan hátt, bæði ef tekið er mið af augunum og líka huganum. More
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022