STUTT LÝSING
Nemendur velta fyrir sér hver tilgangurinn er með byggingum. Hvað það er sem ræður lögun þeirra, stærð og efni. Þeir búa síðan til hús að eigin vali.
HÆFNIVIÐMIÐ
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 7. bekkjar getur nemandi …
• nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun
• unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk
Við lok 10. bekkjar getur nemandi …
• sýnt og útskýrt vinnuferli frá hugmynd að lokaverki sem felur m.a. í sér upplýsingaöflun,
tilraunir og samtal
• skrásett og sett fram hugmyndir á fjölbreyttan hátt byggðar á eigin ímyndunarafli og/eða
rannsókn, myndrænt eða í texta
Hæfnisviðmið fyrir stærðfræði. Rúmfræði og mælingar
Við lok 7. bekkjar getur nemandi …
• notað hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að útskýra hversdagsleg og fræðileg fyrirbrigði
• rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota tölvur og hlutbundin gögn, notað
hnitakerfi til að tjá og leysa rúmfræðileg verkefni
• tengt tölur og útreikninga við flatarmyndir og þrívíða hluti
Við lok 10. bekkjar getur nemandi …
• notað undirstöðuhugtök rúmfræðinnar, nýtt einslögun, hornareglur og hnitakerfi til að teikna
og greina rúmfræðilega hluti, sett fram einföld rúmfræðileg rök, mælt og reiknað lengd,
flöt og rýmiRými er þegar tvívíð form eru látin mynda tilfinningu fyrir rúmmáli og vídd. Bakgrunnur er mjög mikilvægur í rými myndverks. Það fer eftir bakgrunninum hvernig við upplifum rýmið hvort það hefur dýpt og sýnir perspektíf. Í þrívíðum verkum skiptir umhverfi verksins miklu máli því að rýmið í kringum verkið hefur áhrif á hvernig við upplifum fleti og form. Jákvætt rými er aðalatriði myndflatar eða rýmisverks. Neikvætt rými er rýmið sem myndast í kringum aðalatriðið. More og nýtt tölvur til þessara hluta, notað undirstöðuhugtök rúmfræðinnar þar með
talin hugtök um stærðarhlutföll, innbyrðis afstöðu línaLína hefur upphaf og endi í punkti. Hún getur haft fjölbreytta lögun, verið óregluleg og regluleg, bein, hlykkjótt, loðin, áberandi, gróf, fíngerð o.s.frv. More, færslur og fræðilega eiginleika tví- og
þrívíðra forma
• mælt ummálLengd lokaðs ferils sem umlykur flöt, t.d. marghyrnings eða hrings. Ummál marghyrnings er fundið með því að leggja saman hliðar hans. More, flöt og rýmiRými er þegar tvívíð form eru látin mynda tilfinningu fyrir rúmmáli og vídd. Bakgrunnur er mjög mikilvægur í rými myndverks. Það fer eftir bakgrunninum hvernig við upplifum rýmið hvort það hefur dýpt og sýnir perspektíf. Í þrívíðum verkum skiptir umhverfi verksins miklu máli því að rýmið í kringum verkið hefur áhrif á hvernig við upplifum fleti og form. Jákvætt rými er aðalatriði myndflatar eða rýmisverks. Neikvætt rými er rýmið sem myndast í kringum aðalatriðið. More, reiknað stærð þeirra og útskýrt hvað felst í mælihugtakinu
KVEIKJA
Mannabústaðir og byggingar eru breytilegar. Það eru margir þættir sem ráða lögun þeirra, stærð
og efni. Byggingar geta verið ólíkar eftir því hvar þær eru í heiminum eða á hvaða tíma þær voru
byggðar. Hvað ræður til dæmis stærð þeirra? Hvers konar byggingar eru það háar að þær kallist
skýjakljúfar? Hverjir byggja sér litla kofa? Af hverju eru sumar byggingar þaktar gleri en aðrar varla
með glugga, hvað ræður því?
Nú byggið þið hús í leir, það má vera skýjakljúfur, kirkja, listhús, verslun, hótel, hús sem einhverjir
geta búið í eða hús sem þið gætuð sjálf hugsað ykkur að búa í.
FRAMKVÆMD
• Ýmsar leiðir er hægt að fara í þessu verkefni og fer það eftir aðstæðum og þeim tíma sem
nýta á í verkefnið hvaða leið er farin.
• Ef valið er að nemendur skoði byggingar í nánasta umhverfi með eigin augum þá verður
námið tengt raunverulegum upplifunum eins stærð bygginganna, rýmiRými er þegar tvívíð form eru látin mynda tilfinningu fyrir rúmmáli og vídd. Bakgrunnur er mjög mikilvægur í rými myndverks. Það fer eftir bakgrunninum hvernig við upplifum rýmið hvort það hefur dýpt og sýnir perspektíf. Í þrívíðum verkum skiptir umhverfi verksins miklu máli því að rýmið í kringum verkið hefur áhrif á hvernig við upplifum fleti og form. Jákvætt rými er aðalatriði myndflatar eða rýmisverks. Neikvætt rými er rýmið sem myndast í kringum aðalatriðið. More í kringum þær, birtu
og fleira. Hin leiðin er að nemendur skoði arkitektúrList- og fræðigrein um hönnun húsa (utan og innan), garða og borga. Byggingarlist. More í bókum eða á netinu.
• Áður en nemendur fara í verklega vinnu skoðar kennari ásamt nemendum nokkrar myndir/
glærur af byggingum þar sem formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More þeirra er greint út frá stærðfræðilegum hlutföllum, t.d.
Þjóðmenningarhús (gullinsniðGullinsnið er hugtak sem gríski rúmfræðingurinn Pythagoras (560-480 BC) gerði frægt. Hann hafði mikinn áhuga á hlutföllum. Hann sýndi t.d. fram á hvernig margir hlutir í náttúrunni væru byggðir upp í hlutföllum gullinsniðs eins og t.d. kuðungur. Listamenn endurreisnatímabilsins eins og Leonardo DaVinci höfðu mjög mikinn áhuga á hlutföllum og gerðu margar uppgötvanir tengdar gullinsniði. Þeir skoðuðu hvernig staðsetning og hlutföll flata og forma í myndverkum skiptir máli. Gullinsnið er hlutföll milli tveggja mislangra lína, sú styttri skal vera jafnmikill hluti hinnar lengri og sú lengri stór hluti af þeim báðum samanlögðum. Listamenn hafa oft nýtt sér gullinsnið í myndbyggingu til að gera listaverk aðgengilegri og fallegri. Til eru ýmis tæki sem hjálpa listamönnum til að ná fram gullinsniði eins og t.d. gullinsniðsmáti. Hann virkar svipað og sirkill en er í raun bara mælistika sem sniðugt er að nota þegar maður er að hanna eitthvað og vill hafa það í Gullnusniði eða hlutfalli. More), eða skynrænum upplifunum, t.d. tónlistarhúsið Harpa (efni
og litir). Einnig er hægt að skoða staðsetningu bygginga og samhengi milli bygginga á sama
svæði.
• Nemendur teikna húsið sitt, sem annaðhvort er unnið eftir ákveðinni fyrirmynd eða eigin
ímyndunarafli. Á teikningunni þurfa að vera mál leirhússins, hæð, breidd og lengd. Stærð
hússins þarf að vera nokkurn veginn rétt með tilliti til efnismagns af leir og aðferð við að
vinna það.
Leirhúsið getur verið unnið með hvaða aðferð sem kennarinn og/eða nemandinn ákveður.
Nánar um aðferðir í bókinni Leirmótun-keramik fyrir alla á bls. 28–39. Mælt er með
klumpsaðferð fyrir þá sem eru óvanir að vinna með leir en plötuaðferð fyrir þá sem eru
vanari og ef tími er nægur.
• Þegar leirmótun er lokið fer húsið í þurrkun í a.m.k. eina viku og síðan í hrábrennslu.
• Eftir hrábrennslu er húsið málað með leirlitum, sjá bls. 46–47, og glerjað með glærum
glerung eða málað með pensilglerungum, bls. 50–51, eða brennt án allra litarefna upp í
t.d. 1060 °C með glerjuðu húsunum. Það er hægt að fá marga litríka pensilglerunga sem
brenndir eru við 1020–1080 °C.
• Að gljábrennslu lokinni mæla nemendur upp húsið sitt og skrifa hjá sér mál samkvæmt getu
í stærðfræði (sjá hæfniviðmið í stærðfræði hér fyrir ofan) og skila þeim inn ásamt húsinu.
• Að lokum eru verkin metin með kynningu nemenda á verkefnavinnu sinni og umræðum.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvernig hús byggðir þú og af hverju valdir þú að gera svona hús?
Hvar myndir þú vilja sjá hús eins og þú byggðir? Myndir þú byggja eins hús aftur?
ÍTAREFNI
Blaðagrein frá árinu 1997 um leitina að fegurstu húsunum á Íslandi.
Hús á Hverfisgötu, 101 Reykjavík, sjá hér.
Leitarorð á netinu t.d. „earth sheltering“, „modern movement architecture“, „byggingarlistListrænn og tæknilegur þáttur í byggingu mannvirkja. Eins og í öðrum listgreinum nær byggingarlist bæði yfir fagurfræði og notagildi sem eru samofnir þættir í hverju verki. Áherslur á hvort um sig eru mismunandi eftir verkum. Flest menningarsamfélög hafa þróað með sér sérstakan byggingarstíl og háþróuð samfélög hafa tileinkað sér fjölbreytta tækni, stíl- og byggingartegundir. More“.
Verk Le Corbusier sem var svissneskur arkitekt og frumkvöðull í nútímabyggingalist, sjá hér.
ALDUR
Miðstig
Unglingastig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sjálfbærni og sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
Ca. 3 x 40 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
Samþættingarverkefni sjónlista og stærðfræði
EFNI OG ÁHÖLD
- 1–2 dagblaðsarkir
- blað
- blýantur
- glerungar
- hvasst verkfæri eða gaffall
- kefli
- Leirlitir
- leirlím
- módelpinni
- netið og bækur um byggingalist
- Penslar
- Plastpoki
- skál með vatni eða úðabrúsi
- skurðarvír
- sköfur
- snúningsdiskur (má sleppa)
- steinleirSteinleir er oftast grá- eða brúnleitur og það eru málmsölt og ýmis lífræn efni sem gefa honum ólíka liti og áferð. Hægt er að nota hann í alla leirmótun, bæði fyrir nytjahluti og skúlptúra. Hann er oftast brenndur á bilinu 1240-1290°C og gerir þessi mikli hiti hann sterkan. Steinleirinn er því ekki gljúpur eins og jarðleirinn, sem þýðir að hann heldur vatni. Algengt er að gólfflísar séu unnar í steinleir svo og ýmsir nytjahlutir. More eða rauðleir; magn eftir stærð og aðferð
- viðarplata
- viðarspaði
HUGTÖK
Arkitekt
ArkitektúrList- og fræðigrein um hönnun húsa (utan og innan), garða og borga. Byggingarlist. More
GlerungurGlerungur er gler og önnur steinefni sem blandað er saman í ákveðnum hlutföllum þannig að þau bráðni og haldist á leirmunum í gegnum háan hita, harðni og festist á þeim við kólnun. Leirmunir eru glerjaðir til að gera þá sterkari og til að gefa þeim liti, áferð og skreytingu. More
Gljábrennsla
GullinsniðGullinsnið er hugtak sem gríski rúmfræðingurinn Pythagoras (560-480 BC) gerði frægt. Hann hafði mikinn áhuga á hlutföllum. Hann sýndi t.d. fram á hvernig margir hlutir í náttúrunni væru byggðir upp í hlutföllum gullinsniðs eins og t.d. kuðungur. Listamenn endurreisnatímabilsins eins og Leonardo DaVinci höfðu mjög mikinn áhuga á hlutföllum og gerðu margar uppgötvanir tengdar gullinsniði. Þeir skoðuðu hvernig staðsetning og hlutföll flata og forma í myndverkum skiptir máli. Gullinsnið er hlutföll milli tveggja mislangra lína, sú styttri skal vera jafnmikill hluti hinnar lengri og sú lengri stór hluti af þeim báðum samanlögðum. Listamenn hafa oft nýtt sér gullinsnið í myndbyggingu til að gera listaverk aðgengilegri og fallegri. Til eru ýmis tæki sem hjálpa listamönnum til að ná fram gullinsniði eins og t.d. gullinsniðsmáti. Hann virkar svipað og sirkill en er í raun bara mælistika sem sniðugt er að nota þegar maður er að hanna eitthvað og vill hafa það í Gullnusniði eða hlutfalli. More
Hrábrennsla
Klumpsaðferð
Leirlitur
Litarefni
PensilglerungurGlerungur er gler og önnur steinefni sem blandað er saman í ákveðnum hlutföllum þannig að þau bráðni og haldist á leirmunum í gegnum háan hita, harðni og festist á þeim við kólnun. Pensilglerungar, líka kallaðir leirglerungar eða slippglerungar (dregið af enska orðinu slipglaze), innihalda sérstakan leir og þess vegna er hægt að mála með þeim með pensli á hrábrennda hluti. More
Tvívíð formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More
Þrívíð formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Kristín Ísleifsdóttir
Menntamálastofnun 2022