STUTT LÝSING
Fjallað er um skriðdýr og nemendur velja sér dýr til að móta í leir.
HÆFNIVIÐMIÐ
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræðiÖll listaverk eru byggð upp úr formum. Þeim er raðað á myndflöt eða í höggmynd og mynda heildstætt listaverk. Formfræði fjallar um tengslin á milli punkta, lína og flata sem mynda listaverkið. Með því að skoða form og tengslin á milli þeirra má læra margt um myndlist. More og myndbyggingar, skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum
KVEIKJA
Hvaða dýr eru mjög hægfara og ganga með húsið sitt á bakinu? Hvaða dýr eru ekki með fætur og sveigjast til hliðar þegar þau hreyfa sig?
FRAMKVÆMD
- Nemendur skoða myndir í bókum eða á netinu áður en þeir ákveða hvaða dýr þeir ætla að móta.
- Kennari leiðir umræðu um formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More og lögun dýranna. Skýrir út eða er með sýnikennslu á hvernig nemendur eiga að byggja upp sín formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More með kúlum.
- Hver og einn teiknar sitt dýr á blað.
- Því næst móta nemendur nokkrar litlar leirkúlur með því að rúlla þeim á milli handanna. Gott er að hafa frekar mjúkan og blautan leir.
- Til að festa kúlurnar saman er krafsað aðeins í þær með gaffli þar sem þær eiga að snertast. Síðan er formið byggt upp með því að raða kúlunum einni af annarri saman, annaðhvort á lengd eða breidd. Sjá myndir efst.
- Næst er höfuð dýrsins mótað. Þá er búin til kúla og módelpinni notaður til að móta andlit. Höfuðið er síðan fest á búkinn á sama hátt og kúlurnar voru límdar saman. Sama er gert með fæturna á skjaldbökunum. Ráð! Ef kúlurnar eru þurrar þarf að nota leirlím til að festa þær saman, sjá um leirlím á bls. 27 í bókinni Leirmótun-keramik fyrir alla.
- Hægt er að mála leirinn strax eða þegar hann er orðinn þurr eða jafnvel hrábrenndur, sjá um leirliti á bls. 47. Best er að leyfa hverjum og einum að velja lit úr þremur litum á sitt dýr. Uppskriftir að t.d. tveimur grænum litum og einum brúnum eru á sömu blaðsíðu í bókinni. Ef hluturinn er hrábrenndur er glerjað yfir með glærum glerungi.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Af hverju valdir þú að gera slöngu/skjaldböku? Hefur þú séð skjaldböku, snák eða slöngu?
Er skröltormur snákur eða slanga? Skjaldbökur eru hryggdýr en eru snákar það líka?
Í þessu verkefni er líka tækifæri til að auka orðaforða nemenda á hugtökum og orðum sem tengjast formum. Dæmi má nefna orð eins og grannur, mjór, breiður, ávalur og ílangur. Eins má ræða orðaforða sem tengist hreyfingum þessara dýra, s.s. hægfara, skröltandi og skríðandi.
ÍTAREFNI
Leitarorð: turtle | snake
Sjá upplýsingar á Vísindavefnum um skjaldbökur og um snáka.
ALDUR
Yngsta stig
GRUNNÞÆTTIR
T.d. læsi, sjálfbærni og sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
2 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista, náttúrufræði og íslensku
EFNI OG ÁHÖLD
- blað
- blýantur
- fíngerður leir
- gaffall
- leirlím (ef þarf)
- módelpinni
- spónaplata
HUGTÖK
GlerungurGlerungur er gler og önnur steinefni sem blandað er saman í ákveðnum hlutföllum þannig að þau bráðni og haldist á leirmunum í gegnum háan hita, harðni og festist á þeim við kólnun. Leirmunir eru glerjaðir til að gera þá sterkari og til að gefa þeim liti, áferð og skreytingu. More
Hrábrennsla
Leirlitur
Leirlím
LISTAMENN
S.s. Bernini
Caravaggio
LISTASAGA
T.d.
Forn-Egyptar
BarokkListastefna sem var ríkjandi meira og minna alla 17. öldina. Stíllinn er breytilegur eftir löndum. Mikilfenglegur ýkjustíll sem einkennist af viðhafnarmiklum og svellandi formum. Á ítölsku og portúgölsku þýðir barokk „óregluleg perla“. Helstu einkenni barokktímans í myndlist eru þau að í málaralist urðu birtuskil skarpari en áður. Sjónarhornið færðist neðar, líkt og horft væri upp til fólksins á myndinni. Alþýðufólk og öldungar voru oftar fyrirsætur. Auk þess varð hreyfing og frásögn mikilvægari í málverkunum. More
HÖFUNDUR
ⓒ Kristín Ísleifsdóttir
Menntamálastofnun 2022