Límþrykk

STUTT LÝSING

Nemendur kynnast grafík í þessu verkefni. Þau útbúa sína eigin myndir með því að þrykkja með grafíkpressu eða nota aðra aðferð til þess.

HÆFNIVIÐMIÐ

Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar

Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:

  • unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
  • hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
  • tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
  • gengið frá eftir vinnu sína,
  • lagt mat á eigin verk.

Hæfniviðmið fyrir sjónlistir

Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:

  • nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar,
  • skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
  • útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki,
  • þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni,
  • fjallað um eigin verk og annarra.

KVEIKJA

Tilvalið er að vera með þema í þessu verkefni. t.d. dýr, fugla, lífið í sjónum, árstíðir o.þ.h.

Kennari sýnir nemendum sýnishorn af límþrykkplötu og þau fá að finna að teikningin á plötunni er upphleypt. Kennarinn útskýrir að þetta sé teiknað með lími sem nú sé orðið hart og þar með upphleypt. Síðan fá nemendur að sjá mynddæmi eftir að þrykkt er með límþrykksplötunni/stimplinum á blað. Kennari bendir á að myndirnar eru spegilmynd af upprunalegu myndinni. Farið er yfir vinnuferlið með nemendum og þeim sýnd áhöldin sem notuð eru og hvað þau nefnast.

Nemendur eru hvattir til að teikna stórar myndir og fylla vel út í spjaldið. Gæta þess að hafa ekki of mikið af smáatriðum þar sem erfitt er að teikna smáatriði með límstiftinu. Til að koma í veg fyrir að nemendur teikni of smágert má láta þá teikna fyrst með breiðum tússlit.

FRAMKVÆMD

Fyrir tímann er kennari búinn að útbúa sýnishorn til að sýna nemendum.

Kennslustund 1: Byrjað er á kveikju. Því næst gera nemendur skissur og velja sér myndefni til að teikna á pappaspjaldið. Síðan fara þeir ofan í línurnar með trélími/föndurlími. Myndirnar látnar þorna þar til í næsta tíma.

Kennslustund 2: Nemendur rúlla grafíklit á sínar myndir, setja pappírsörk ofan á og þrykkja annað hvort með grafíkpressu eða öðrum aðferðum. Þau gera eins mörg eintök og tími og áhugi leyfir. Nemendum er bent á að prófa að nota fleiri liti eða að prófa að þrykkja ofan í sömu myndina. Myndirnar látnar þorna.

Eftirvinnsla: Nemendur fara í gegnum myndirnar og velja eina til að setja á karton. Myndin er klippt til og límd á A4 karton.

UMRÆÐUSPURNINGAR

ALDUR

Yngsta stig

GRUNNÞÆTTIR

Læsi, sköpun

FJÖLDI KENNSLUSTUNDA

2-3 x 80 mínútur

ÞVERFAGLEG TENGING

T.d. samþættingarverkefni sjónlista og náttúrugreina

EFNI OG ÁHÖLD

blýantar eða breiðir tússlitir
grafíkrúllur, grafíklitir, glerplötur og grafíkpressa
pappaspjöld, skorin í ca. 16 x 11 cm spjöld, sem er passleg stærð til að þrykkja á A4 blöð. Auðvitað má nota hvaða stærð sem er en gott er að hafa í huga hvaða stærð af pappír á að þrykkja á
pappír til að skissa á
pappír til að þrykkja á
trélím eða föndurlím

HUGTÖK

grafík
límþrykk
þrykkja

LISTAMENN

Að eigin vali

LISTASAGA

Að eigin vali

HÖFUNDUR

ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2023