HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
- tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
- gengið frá eftir vinnu sína,
- lagt mat á eigin verk.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræðiÖll listaverk eru byggð upp úr formum. Þeim er raðað á myndflöt eða í höggmynd og mynda heildstætt listaverk. Formfræði fjallar um tengslin á milli punkta, lína og flata sem mynda listaverkið. Með því að skoða form og tengslin á milli þeirra má læra margt um myndlist. More og myndbyggingar,
- skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.
Hæfniviðmið fyrir náttúrugreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- aflað sér upplýsinga er varða náttúruna,
- sagt frá eigin upplifun á náttúrunni og skoðun á lífveru í náttúrulegu umhverfi,
KVEIKJA
Nemendum eru sýnd myndir af sólarlagi eða sólaruppkomu þar sem borg eða landslag mynda skuggamynd (e. silhouette).
FRAMKVÆMD
1. kennslustund: Byrjað er á að fara í gegnum verkferlið með nemendum. Þau fá síðan blað (ca 32 x 22,5 cm) og þekjuliti (t.d. Neocolor I). Nemendur velja liti fyrir himininn og lita allt blaðið og mega gjarnan blanda saman litunum. Þekja þarf blaðið vel og lita þétt og fast. Að því loknu mála þau útlínurSvartar línur utan um form eða hluti, til dæmis í teiknimyndasögum. More húsa á neðri hluta blaðsins og fylla neðri hlutann alveg með bleki. Látið þorna þar til í næsta tíma.
2. kennslustund: Nemendur nota stóra nagla til að skrapa glugga, hurðir, ljósastaura, götur, bíla og hvað annað sem þeim dettur í hug á blaðið. Svo merkja þau myndirnar sínar einnig með því að nota naglann. Nota má afgangstíma og virkja nemendur í að hengja upp myndirnar t.d. á ganga skólans. Setja má myndirnar allar saman í langa röð, nokkurs konar víðmynd (e. panorama).
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvers vegna myndast svona skuggamyndir?
Hvers vegna verður himinninn svona litríkur?
Hvaða litir eru ráðandi?
ALDUR
Yngsta stig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
2 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og náttúrugreina
EFNI OG ÁHÖLD
pappír 120-170 gr (ca. 32 x 22,5 cm)
penslar í útlínurSvartar línur utan um form eða hluti, til dæmis í teiknimyndasögum. More og stærri penslar til að fylla upp í
stórir naglar til að teikna með (ca. 7-10 cm langir)
svart blekLitaður vökvi eða þykkni notað til að skrifa, teikna eða prenta. Það er til í mörgum litatónum. Efnasamsetning bleks er oft flókin en það getur t.d. innihaldið litarefni, trjákvoðu og leysiefni. (e. ink drawing) | Teikning More (s.s. Indian Ink)
þekjulitirEru þekjandi vatnsleysanlegir litir sem eiga uppruna sinn í Frakklandi. Þeir eru útbúnir með því að blanda litadufti við vatn og bindiefni, s.s. arabískt gúmmí. More t.d. Neocolor I
HUGTÖK
andstæðir litirLitir sem eru staðsettir andspænis hvor öðrum á litahringnum. Ef blandað er saman rauðum og bláum verður til fjólublár, gulur er andstæður litur þess fjólubláa. Þegar andstæðir litir eru settir hlið við hlið hafa þeir sterk áhrif hvor á annan. Það getur t.d. verið gott að skapa hreyfingu með því að nota andstæða liti. More
heitir og kaldir litirEru þeir litir sem innihalda yfirgnæfandi magn af bláum, grænum eða fjólubláum litatónum. More
litafræðiFræði um liti og það hvernig þeir orka hver á annan. More
ljós og skuggi
rýmiRými er þegar tvívíð form eru látin mynda tilfinningu fyrir rúmmáli og vídd. Bakgrunnur er mjög mikilvægur í rými myndverks. Það fer eftir bakgrunninum hvernig við upplifum rýmið hvort það hefur dýpt og sýnir perspektíf. Í þrívíðum verkum skiptir umhverfi verksins miklu máli því að rýmið í kringum verkið hefur áhrif á hvernig við upplifum fleti og form. Jákvætt rými er aðalatriði myndflatar eða rýmisverks. Neikvætt rými er rýmið sem myndast í kringum aðalatriðið. More
skuggamynd (e. silhouette)
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022