STUTT LÝSING
Nemendur búa til grímur með alls kyns mynstrum.
Erro
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
- útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið,
- tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
- gengið frá eftir vinnu sína,
- lagt mat á eigin verk.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræðiÖll listaverk eru byggð upp úr formum. Þeim er raðað á myndflöt eða í höggmynd og mynda heildstætt listaverk. Formfræði fjallar um tengslin á milli punkta, lína og flata sem mynda listaverkið. Með því að skoða form og tengslin á milli þeirra má læra margt um myndlist. More og myndbyggingar,
- tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.
- þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni,
- fjallað um eigin verk og annarra.
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu (Reynsluheimur)
- bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum (Reynsluheimur)
KVEIKJA
Skoðið myndir af grímum frá ýmsum löndum og ræðið um þær. Af hverju ætli þær hafi verið gerðar? Ræðið um hverjir það eru sem ganga með grímur og hvers vegna, Hvernig eru grímurnar skreyttar? Hvaða formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More sjá þau? Eru það grunnformGrunnformin eru til í öllum litum og margskonar samsetningum. Tvívíð form eru hringur, ferningur og þríhyrningur. Þau hafa lengd og breidd. Þau eru líka til þrívíð en þá eru þau kúla, teningur og píramídi. Þau hafa lengd, breidd og hæð. More eða náttúruleg formNáttúruleg form hafa mjúkar og ávalar línur. Þau eru líka stundum nefnd lífræn form. More? Mynda formin mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More? Ræðið um liti, hvort notaðir séu frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More eða blandaðir litir.
FRAMKVÆMD
Nemendur teikna grímu á stíft karton (t.d. úr pappakössum). Hægt er að nota skapalón til að miða út augu, nef og lágmarksstærð til að gríman passi og nemendur teikni ekki of lítið eða of stórt. Þau geta þó breytt laginu á þeim ef þau vilja t.d. með því að teikna horn eða aðra útúrdúra. Nemendur teikna því næst formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More og mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More á grímurnar og lita með litum (s.s. Neocolor I). Það er um að gera að vanda sig að lita til að formin og mynstrin njóti sín.
Að þessu loknu klippa nemendur grímurnar út en kennari sér síðan um að skera út fyrir augum og nefi og setja teygju í grímurnar.
Ef tími vinnst til má skreyta grímurnar enn frekar með alls konar hlutum s.s. fjöðrum, baunum, garni o.fl. Þá er best að lakka yfir með glæru vatnslakki. Nemendur geta útbúið leikrit út frá grímunum.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hverjir ganga með grímur?
Hvers vegna ganga sumir með grímur?
Hvernig eru grímur stundum skreyttar?
Hvernig eru grímurnar á litinn?
ALDUR
Yngsta stig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sjálfbærni, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
3 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og samfélagsgreina
EFNI OG ÁHÖLD
blýantar (og strokleður ef þarf)
grímuskapalón (ef vill)
litir s.s. Neocolor I
rúnnuð teygja
skæri
stíft karton (t.d. pappír úr tómum kössum)
HUGTÖK
annars stigs litir
frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More
grunnformGrunnformin eru til í öllum litum og margskonar samsetningum. Tvívíð form eru hringur, ferningur og þríhyrningur. Þau hafa lengd og breidd. Þau eru líka til þrívíð en þá eru þau kúla, teningur og píramídi. Þau hafa lengd, breidd og hæð. More
mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More
náttúruleg formNáttúruleg form hafa mjúkar og ávalar línur. Þau eru líka stundum nefnd lífræn form. More
þriðja stigs litir
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022