MARKMIÐ – ÁHERSLA
Nemendur:
- vinni myndræna frásögn úr nánasta umhverfi, upplifunum og ímyndunum með því að nota á fjölbreytilegan hátt viðeigandi efni, verkfæri og tækniFærni eða aðferð í handverki og listum. More
- þekki muninn á grunnformum og náttúrulegum formum
- fjalli um hvaða gildi myndverk getur haft fyrir hvern og einn
- lýsi myndverki og skoðun sinni á því
- læri að teikna afmörkuð formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More og teikna stórt og skýrt
- læri að lita og fylla upp í fleti
- læri vönduð vinnubrögð
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
- tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
- gengið frá eftir vinnu sína,
- lagt mat á eigin verk.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræðiÖll listaverk eru byggð upp úr formum. Þeim er raðað á myndflöt eða í höggmynd og mynda heildstætt listaverk. Formfræði fjallar um tengslin á milli punkta, lína og flata sem mynda listaverkið. Með því að skoða form og tengslin á milli þeirra má læra margt um myndlist. More og myndbyggingar,
- skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.
Hæfniviðmið fyrir heimilisfræði
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan,
KVEIKJA
Nemendur skoða hluti sem eru í frumlitum, þau skoða og ræða um litina. Velta fyrir sér af hverju þeir heiti frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More og á hvaða hátt þeir séu ólíkir öðrum litum.
Síðan eru sýndir hlutir í annars stigs litum og rætt um að hægt sé að fá fram litinn á þeim hverjum fyrir sig með því að blanda saman tveimur af frumlitunum. Nemendur eru hvattir til að segja frá hvernig þau telji að blanda eigi grænan, appelsínugulan og fjólubláan lit. Að því loknu er verkferlið framundan útskýrt fyrir nemendum.
FRAMKVÆMD
Hægt er að láta nemendur vinna verkefnið á marga vegu, allt eftir aðstæðum og nemendahóp. Hér eru dæmi um tvær útfærslur.
Teikna fyrst og mála svo … (stöðvavinna)
Nemendur teikna ávexti og grænmeti á A3 blað og þau minnt á að teikna stórt og fylla vel út í blaðið. Til hagræðingar geta þau skipt blaðinu í 6 hólf, eitt fyrir hvern lit. Þegar þau hafa lokið við að teikna er nemendum skipt í þrjá hópa sem hver um sig fær einn frumlit. Nemendur mála þá ávexti og grænmeti sem eru í frumlitunum og færa sig á milli borða. Að því loknu fær hver hópur frumlit nr. 2 þannig að t.d. guli hópurinn blandar appelsínugulan, rauði hópurinn blandar fjólubláan og blái hópurinn blandar grænan. Síðan færa þau sig á milli á sama hátt og áður og klára að mála hlutina á sínu blaði. Þegar myndirnar eru þurrar klippa nemendur út ávextina og grænmetið og raða því upp í sex lita hring á karton í hlutlausum lit. Best er að segja nemendum að líma ekki fyrr en þau eru búin að raða öllum formunum og láta kennarann fara yfir.
Mála fyrst og teikna svo … (hópavinna)
Byrjað er á að skipta nemendum í þrjá hópa sem hver um sig fær einn frumlit. Nemendur mála heilt A3 blað með sínum lit. Að því loknu fær hver hópur frumlit nr. 2 þannig að t.d. guli hópurinn blandar appelsínugulan, rauði hópurinn fjólubláan og blái hópurinn grænan. Aftur mála nemendur heilt A3 blað. Þegar máluðu blöðin eru orðin þurr eru þau skorin niður þannig að hver nemandi fær 6 arkir (u.þ.b. A6-A5); 3 frumliti og 3 annars stigs liti. Nemendur teikna 2-3 ávexti á bakhlið blaðsins (muna að nýta blaðið vel), klippa út og raða þeim upp í sex lita hring á karton í hlutlausum lit. Best er að segja nemendum að líma ekki fyrr en þau eru búin að raða formunum og láta kennarann fara yfir.
ALDUR
Yngsta stig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
2-3 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og heimilisfræði
EFNI OG ÁHÖLD
LitahringurMynd af flokkun litanna. Listamaðurinn Isaac Newton bjó til litablöndunarkerfi þar sem hann raðaði frumlitunum (grunnlitunum) í þríhyrning. Út frá þríhyrningnum teiknaði hann þrjá þríhyrninga sem hann málaði með þeim litum sem mynduðust þegar hann blandaði frumlitunum saman í jöfnu hlutfalli (annarsstigs litablöndun). Hornin á þeim þríhyrningum vísa inn í hringskífu með 12 afmörkuðum litaflötum eins og sést á myndinni. 3 frumlitir og 3 annarsstigs litir. Sitthvoru megin við annarsstigs litinn eru litafletir sem myndast þegar frumlitnum er blandað saman við annarsstigs litinn. More til útprentunar (ef vill)
A3 karton hvítt
A3 karton í hlutlausum lit (skorið í ferning)
Blýantar (og strokleður ef þarf)
ÞekjulitirEru þekjandi vatnsleysanlegir litir sem eiga uppruna sinn í Frakklandi. Þeir eru útbúnir með því að blanda litadufti við vatn og bindiefni, s.s. arabískt gúmmí. More í frumlitum
Penslar (stærð fer eftir útfærslu)
Málningarbakkar
HUGTÖK
annars stigs litir
frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More
litahringurMynd af flokkun litanna. Listamaðurinn Isaac Newton bjó til litablöndunarkerfi þar sem hann raðaði frumlitunum (grunnlitunum) í þríhyrning. Út frá þríhyrningnum teiknaði hann þrjá þríhyrninga sem hann málaði með þeim litum sem mynduðust þegar hann blandaði frumlitunum saman í jöfnu hlutfalli (annarsstigs litablöndun). Hornin á þeim þríhyrningum vísa inn í hringskífu með 12 afmörkuðum litaflötum eins og sést á myndinni. 3 frumlitir og 3 annarsstigs litir. Sitthvoru megin við annarsstigs litinn eru litafletir sem myndast þegar frumlitnum er blandað saman við annarsstigs litinn. More
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022