STUTT LÝSING
Nemendur gera skissu af grímu og útbúa síðan eina slíka. Þau eru hvött til að skreyta þær með formum og mynstrum.
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni,
- haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni,
- gert grein fyrir menningarlegu hlutverki list- og verkgreina,
- gert grein fyrir helstu hugtökum sem tengjast viðfangsefni hans,
- sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði,
- lagt mat á eigin verk og sýnt skilning á vönduðum vinnubrögðum.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
- notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun,
- nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun,
- unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk,
- byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu,
- beitt hugtökum og heitum sem tengjast aðferðum verkefna hverju sinni,
- fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur,
- greint og fjallað um áhrif myndmáls í umhverfinu og samfélaginu.
Hæfniviðmið fyrir samfélagsgreinar
Við lok 7. bekkjar getur nemandi t.d.:
Reynsluheimur
- skýrt tengsl samfélags, náttúru, trúar og lífsviðhorfa fyrr og nú,
- rætt á upplýstan hátt um tímabil, atburði og persónur, sem vísað er til í þjóðfélagsumræðu,
- rætt viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og sett í samhengi við atburði daglegs lífs.
Hugarheimur
- gert sér grein fyrir jafngildi sínu og annarra manna og rætt þýðingu þess,
- sett sig í spor fólks með ólíkan bakgrunn á völdum stöðum og tímum.
Félagsheimur
- tjáð þekkingu sína og viðhorf með fjölbreyttum hætti, einn sér og í samstarfi við aðra.
KVEIKJA
Sýnið nemendum myndir af grímum frá ýmsum löndum og ræðið um hvernig þær eru skreyttar. Hvaða formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More sjá þau? Eru það grunnformGrunnformin eru til í öllum litum og margskonar samsetningum. Tvívíð form eru hringur, ferningur og þríhyrningur. Þau hafa lengd og breidd. Þau eru líka til þrívíð en þá eru þau kúla, teningur og píramídi. Þau hafa lengd, breidd og hæð. More eða náttúruleg formNáttúruleg form hafa mjúkar og ávalar línur. Þau eru líka stundum nefnd lífræn form. More? Mynda formin mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More? Benda má á hvernig formin eru notuð til að einfalda andlitsdrættina. Einnig er tilvalið að ræða um litanotkun, hvort notaðir séu frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More eða blandaðir litir.
FRAMKVÆMD
Byrjað er á kveikju.
Kennslustund 1:
Nemendur teikna útlínurSvartar línur utan um form eða hluti, til dæmis í teiknimyndasögum. More grímu á stíft karton t.d. eftir grímuskapalóni. Skapalónið er notað til að augu og nef séu á réttum stað og til að grímurnar verði nógu stórar til að hylja andlitin vel. Nemendur geta síðan breytt laginu á grímunum ef þau vilja. Kennari sker út fyrir augum og nefi.
Hver nemandi fyllir plastpoka (á stærð við venjulegan innkaupapoka) með krumpuðum dagblöðum. Pokinn er lokaður með málningateipi og myndaður nokkurs konar sívalningur sem notaður er til að forma grímuna. Gríman er síðan teipuð við „sívalninginn“.
Kennslustund 2 og 3 – pappamassavinna
Nemendur fá dagblöð sem búið er að rífa í ræmur (ca. 4-5 cm breiðar). Ræmurnar eru makaðar báðum megin með hæfilegu magni af veggfóðurlími. Áður en þær eru settar á grímuna er nauðsynlegt að bera lím á hana líka annars festast þær ekki nógu vel. Ágætt er að fara fyrstu umferðina þversum og þá næstu langsum o.s.frv. Benda þarf nemendum á að ræmurnar verði að skarast og að festa það sem fer út fyrir vel á bakhlið grímunnar.
Þegar kemur að nefinu er nefflipanum lyft upp og ræmurnar settar allt í kringum nefið en nefopinu haldið opnu (best er að geyma nefið þar til síðast. Nemendur geta sett ræmurnar yfir augun og pota svo í gegn um götin meðan ræmurnar eru enn blautar og snyrt þau að lokum.
Misjafnt er hvað nemendur ná að gera margar umferðir í tímanum en lágmarkið er 3-4 umferðir. Þeim mun fleiri umferðir, þeim mun sterkari verður gríman. Hægt er að nota hvítan pappír í síðustu umferðina og sleppa því að grunnmála hana hvíta. Nú eru grímurnar látnar þorna þar til í næsta tíma.
Í stað þess að mála og skreyta grímurnar strax er hægt að útbúa upphleypt mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More á grímuna t.d í kringum augu, munn eða nef. Þá dýfa nemendur ræmunum í límið, strjúka það mesta af þeim og krumpa í snúrur, kúlur, kubba eða hvað sem þeim dettur í hug. Síðan þarf að fara eina umferð með ræmum yfir mynstrin og muna að þrýsta vel upp að þeim þannig að ekki myndist loftrúm.
Kennslustund 4 – málun og skreyting:
Grímurnar eru losaðar af plastpokanum og grunnaðar með hvítri akrílmálningu (ef ekki hefur verið notaður hvítur pappír í síðustu umferð). Síðan styðjast nemendur við skissurnar sem þau gerðu í upphafi og mála mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More á grímurnar með akrílmálningu. Að síðustu, þegar málningin er þornuð, er sett teygja í grímurnar. Ef tími vinnst til má skreyta grímurnar enn frekar með alls konar hlutum s.s. fjöðrum, baunum, garni o.fl. Þá er best að lakka yfir með glæru vatnslakki.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvaða formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More sjáið þið í grímum sem þið skoðið á netinu? Eru það grunnformGrunnformin eru til í öllum litum og margskonar samsetningum. Tvívíð form eru hringur, ferningur og þríhyrningur. Þau hafa lengd og breidd. Þau eru líka til þrívíð en þá eru þau kúla, teningur og píramídi. Þau hafa lengd, breidd og hæð. More eða náttúruleg formNáttúruleg form hafa mjúkar og ávalar línur. Þau eru líka stundum nefnd lífræn form. More? Mynda formin mynsturMynstur er gert með því að endurtaka sömu formin eða litina aftur og aftur á sama hátt. Hugurinn leitar þá ósjálfrátt eftir reglu í endurtekningunni og greinir mynstur. Mynstur er reglulegt þegar endurtekningin er alltaf eins en ef að listamaðurinn endurtekur formin og litina á ólíkan máta er mynstrið óreglulegt. More? Hvaða litir eru notaðir í grímunum? Eru það frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More, 2. stigs litir eða jafnvel 3.stigs litir?
ALDUR
Miðstig
GRUNNÞÆTTIR
Læsi, lýðræði- og mannréttindi, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
4 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og samfélagsgreina
EFNI OG ÁHÖLD
akrílmálning
blýantar (og strokleður ef þarf)
dagblaðaræmur
grímuskapalón
málningarteip
plastpoki m/krumpuðum dagblöðum
rúnnuð teygja
skissupappír
stíft karton (t.d. afskurður)
veggfóðurslím
HUGTÖK
annars stigs litir
frumlitirLitir sem ekki er hægt að búa til með blöndun. Frumlitirnir eru þrír: gulur, rauður og blár. More
grunnformGrunnformin eru til í öllum litum og margskonar samsetningum. Tvívíð form eru hringur, ferningur og þríhyrningur. Þau hafa lengd og breidd. Þau eru líka til þrívíð en þá eru þau kúla, teningur og píramídi. Þau hafa lengd, breidd og hæð. More
jarðlitirLitarefni unnin úr lituðum steintegundum, einkum járnsteindalituðum leir. Þeir fást með því að blanda saman frumlitunum þremur í mismunandi hlutföllum. More
náttúruleg formNáttúruleg form hafa mjúkar og ávalar línur. Þau eru líka stundum nefnd lífræn form. More
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022