STUTT LÝSING
Nemendur útbúa bæ eða borg úr kössum og boxum og skipuleggja hvaða þjónusta þarf að vera í boði.
HÆFNIVIÐMIÐ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list- og verkgreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
- hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
- tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
- gengið frá eftir vinnu sína,
- lagt mat á eigin verk.
Hæfniviðmið fyrir sjónlistir
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
- nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræðiÖll listaverk eru byggð upp úr formum. Þeim er raðað á myndflöt eða í höggmynd og mynda heildstætt listaverk. Formfræði fjallar um tengslin á milli punkta, lína og flata sem mynda listaverkið. Með því að skoða form og tengslin á milli þeirra má læra margt um myndlist. More og myndbyggingar,
- skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.
Hæfniviðmið fyrir samfélagsgreinar
Við lok 4. bekkjar getur nemandi t.d.:
Reynsluheimur
- bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu,
- rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi,
- gert sér grein fyrir gildi náttúru og umhverfis og mikilvægi góðrar umgengni,
- komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga,
- bent á nokkrar mikilvægar stofnanir samfélagsins,
- áttað sig á gildi samhjálpar í samfélaginu.
Hugarheimur
- gert sér grein fyrir að í umhverfinu eru margvísleg áreiti, jákvæð og neikvæð, sem hafa áhrif á líf hans.
Félagsheimur
- rætt um valin samfélagsleg og siðferðileg málefni,
- tjáð þekkingu sína og viðhorf með ýmsum hætti,
- sett sig inn í málefni nærsamfélagsins.
KVEIKJA
Sýnið nemendum myndir af bæjum og borgum og ræðið um skipulag, götur, hús o.þ.h. Hægt er að hugstorma og biðja nemendur að nefna allt sem þeim dettur í hug að þurfi að vera í bæ eða borg s.s. íbúðarhús, blokkir, götur, torg, spítali, sundlaug, verslanir, hótel, strætisvagnar og bílar o.fl. Nota má listann til að deila verkefnum milli nemenda þannig að ekki geri allir það sama. Ræða má um stærðarhlutföll og jafnvel hafa lítinn legókarl eða leikfangabíl sem viðmiðun um stærðarhlutföll. Það getur gefið borginni meiri heildarsvip og nemendum tækifæri til að átta sig á stærðarhlutföllum.
FRAMKVÆMD
1. – 2. kennslustund: Nemendur finna sér kassa og box til að útfæra þá byggingu sem þau hafa valið sér, líma t.d. fleiri en einn kassa saman eða líma á strompa o.þ.h. Ef tími vinnst til í þessum tíma geta þau byrjað að mála húsin og látið þau þorna þar til í næsta tíma. Bendið nemendum á að hentugra er að teikna glugga og hurðir eftir að húsin hafa verið máluð og þau þornuð.
3.-4. kennslustund: Nemendur byrja að skipuleggja borgina á stórt bylgjupappaspjald. Ákveða þarf hvar húsin eiga að standa, hvar götur, garðar og svoleiðis skuli vera. Skipulagið er teiknað á pappaspjaldið (gott er að teikna inn á hvar hvert hús á að standa og skrifa nafn þess sem á húsið í reitinn). Síðan þarf að lita eða mála götur og garða. Ef tími vinnst til er t.d. hægt að búa til ljósastaura, tré, strætóskýli, bíla o.þ.h. Að lokum eru húsin fest á pappaspjaldið með kennaratyggjói þar sem nemendur geta að lokum tekið húsin með sér heim.
Borgina eða bæinn má svo hafa til sýnis í skólanum í einhvern tíma áður en nemendur taka húsin með sér heim. Pappaspjaldið með skipulaginu má nýta í frjálsum tímum nemenda t.d. fyrir bílaleik.
UMRÆÐUSPURNINGAR
Hvaða formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More þekkið þið?
Hvernig má breyta tvívíðu formi í þrívítt formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More?
Hvaða þjónusta skiptir máli að hafa í bæ eða borg?
ÍTAREFNI
Litir – veggspjald í myndmennt
Kveikjur fyrir skapandi skólastarf
Leitarorð: city scale model | Eco Compact City Network | Scale models of towns | Urban models
ALDUR
Yngsta stig
GRUNNÞÆTTIR
Heilbrigði og velferð, jafnrétti, lýðræði og mannréttir, læsi, sjálfbærni, sköpun
FJÖLDI KENNSLUSTUNDA
3-4 x 80 mínútur
ÞVERFAGLEG TENGING
T.d. samþættingarverkefni sjónlista og samfélagsgreina
EFNI OG ÁHÖLD
akrílmálning
bylgjupappaspjald ca. 1 × 1,2 m
litaður afgangspappír (t.d. silkipappír í tré)
litir
lím (t.d. UHU)
límstifti
málningarlímband
naglar (t.d. í ljósastaura)
penslar
tússpennar
umbúðir, litlir kassar o.fl. smádót
HUGTÖK
flöturFlötur myndast þegar línur tengjast saman. Stundum er talað um myndflöt þá er átt við alla myndina eða allt málverkið. Flötur getur líka verið eining innan myndflatarins. More
formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More
rýmiRými er þegar tvívíð form eru látin mynda tilfinningu fyrir rúmmáli og vídd. Bakgrunnur er mjög mikilvægur í rými myndverks. Það fer eftir bakgrunninum hvernig við upplifum rýmið hvort það hefur dýpt og sýnir perspektíf. Í þrívíðum verkum skiptir umhverfi verksins miklu máli því að rýmið í kringum verkið hefur áhrif á hvernig við upplifum fleti og form. Jákvætt rými er aðalatriði myndflatar eða rýmisverks. Neikvætt rými er rýmið sem myndast í kringum aðalatriðið. More
tvívíð formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More
þrívíð formLögun sýnilegra forma geta bæði verið geometrísk eða lífræn. Form geta bæði verið huglæg og sýnileg. Huglæg form birtast ekki á myndfletinum heldur eru þau formin sem við sjáum fyrir okkur sem form, þegar augun mynda línur á milli mismunandi eininga á myndfletinum. Form hafa ólíka liti og ólíka áferð. More
LISTAMENN
Að eigin vali
LISTASAGA
Að eigin vali
HÖFUNDUR
ⓒ Sigrún Ólafsdóttir
Menntamálastofnun 2022